søndag den 7. april 2013

Allt að bresta á

Þá fer að koma að þessu, nú er búið að setja inn smá samantekt með afþreyingartillögum og drögum að dagskrá.

Sjá tengla hér til hliðar...

fredag den 4. januar 2013

Alvöru karlmenn

Jæja, þá hefur vald síðunnar færst á hendur okkar og samannúningur lófa, skipulagning og tilhlökkun getur hafist. Ekki eftir neinu að bíða!
 

onsdag den 19. december 2012

TIL HAMINGJU!

Ef þú ert lentur hér á þessari síðu, þýðir það aðeins eitt; þú hefur fengið jólagjöf frá konu sem elskar þig ofurheitt :-)

Og þú ert eflaust orðin forvitinn að vita hvað í gjöfinni er falið og það er nú einfaldlega og ekkert minna en .....

        Ferð til Berlínar með vinunum!

Árið 2013 verður viðburðarríkt með meiru og einn af þeim er ferðin til Berlínar frá 26. apríl - 29. apríl.

Með í för verður Guðmundur Þór - Markaðstjóri, Finnur Geir - Fjármálastjóri og Andrés Ingason - Leiðsögumaður.


Undirbúningur og skipulagning að öðru leyti verður í ykkar eigin höndum og treystum við því að þið verðið landi og þjóð til sóma :-)

Ástarkveðjur til ykkar allra
Rakel, Elva og Hanna.

P.s. þegar gjöfin hefur verið opinberuð er hugmyndin sú að þið ungu herrar fáið fullt forræði yfir þessari bloggsíðu. Þið getið nýtt hana til samskipta ykkar á milli ef þið kjósið svo ;-)